1. |
Rúmfó
04:26
|
|||
Heilsteyptur einstaklingur
skortir skap og mig skortir glingur
skortir skortinn, skortir miðju fingur
skortir að vera sama um allt.
Við eigum ekki efni á neinu
því við höfum ekki neitt á hreinu
við viljum eyða, við viljum eiga fínt
en við höfum ekki efni á neinu
Það skiptir okkur ekki neinu
bara að það virki sirka´bát
til að leggja af stað uppí
Kóóóóóósíííí
Zoomaðu inn
sjáðu hvað við erum skrítin
þó hress svona í flýti
við þekkjumst svo vel
við þenjumst eins og vél.
Við þenjumst eins og vél.
Rúm, vrúúm, vrúúm
Keyrum upp í rúm, vrúúm, vrúúm
Keyrum upp í Rúmfatalagerinn
Vrúúm, rúm, Vrúúm, rúm
|
||||
2. |
Feng Sví
02:42
|
|||
Það varst þú
sem pikkaðir mig upp.
Það varst þú
sem slóst mig aftur niður.
Það varst þú
sem rakst mig á burt.
Það var feng shui, jafnvægi og friður.
Það var ég
sem fokkaði öllu upp
og það var ég
sem grét og reitti fiður.
Það var ég
sem sagði allt í lagi.
Það var feng shui, jafnvægi og friður.
Verndað umhverfi
Stíliseraðgreiðslur
sínester drasl
það liggur í höfuðáttir
ekkert vesen.
Það vorum við
sem játuðum okkur sigruð.
Það vorum við
sem gerðum ekkert í því.
Það vorum við
sem fórum svona stutt.
Það var ekkert
við vorum alltof sumt.
|
||||
3. |
Sportbíll
04:15
|
|||
Ég ætlaði að verða sportbíll
ákvað að verða rokkstjarna
spila samt ekkert rokk
ó
Ég á þrjá valkosti um líf
ég get fundið konu
og keyrt um evrópu.
Ég get líka orðið pallbíll
og lifað hér.
Eða húsbíll
og farið í háskóla
Annars skiptir það engu máli
og eitthvað gerist
Mamma sagði þetta verður allt í lagi
Mamma sagði það
(og það kemur)
Það kemur mér ekki á óvart
hversu ömurlegt það er að vera til
Þegar maður hugsar bara um
hversu ömurlegt það er að vera til
Ertu til, ertu tilbúinn, ertu búinn, ertu búinn til?
Ef svo hver gerði það?
Voru það klikkuðu költ gæjarnir með kaffið á Lækjartorgi
Var það sjónvarpið?
Var það músíkin?
Var það fulli pabbi, reiði frændi
amma eða systir þín?
Var það ég sem hugsaði
og allt varð til?
Eða búið
til.
|
Johnny Blaze & Hakki Brakes Reykjavík, Iceland
The eccentric duo from Reykjavik, Iceland Johnny Blaze & Hakki Brakes explores life on the fast lane in new wavy beats and '80s synthesizers. Their first album Vroom Vroom Vroom shook up the new wave scene in Iceland and was considered one of the best albums of the year. ... more
Contact Johnny Blaze & Hakki Brakes
Streaming and Download help
If you like Johnny Blaze & Hakki Brakes, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp